Hríseyjarskóli

Leikskóladeildin Smábær     

Leikskóli í Perlu Eyjafjarðar á grænni grein

Foreldrahandbók
Foreldrafélag
Námskrá
Lífsleikni
Starfsfólk
Dagatal mánaðarins
Matseðill mánaðarins
Myndir
Grænfáni
Eldri fréttir
Brúum bilið
Skýrslur
Tenglar
Til gamans
Gullkorn

 

Myndskreytingar:

Ábyrgðarmaður heimasíðunnar er:
 Ingibjörg Þórðardóttir

Fréttir úr Smábæ:

  • 13. ágúst - Þá erum við komin aftur á leikskólann eftir gott og endurnærandi sumarfrí.  Verið öll velkomin aftur til starfa.  Það hefur verið rólegt hjá okkur fyrstu tvo dagana og fá börn mætt ennþá en á mánudaginn eigum við von á fleirum.
    Það byrjaði ný stelpa hjá okkur í aðlögun í gær.  Hún heitir Jóhanna Kristín og er 10 mánaða gömul.  Við bjóðum hana velkomna til okkar.
    Þá viljum við líka taka það fram hér að hún Berglind sem hefur unnið hjá okkur frá því í maí 2009 er nú hætt á leikskólanum og ætlar að fara að vinna í grunnskólanum.  Við þökkum henni fyrir frábær störf og vonum að hún verði ánægð hinum megin við vegginn.  Við munum sakna hennar en vonandi sjáum við hana stundum í skólanum:)
    Matseðill fyrir næstu viku er kominn inn á síðuna.
    Þá eru komnar inn nýjar myndir á síðuna, fram að sumarfríi.
  • 14. júlí - Í dag var síðasti dagurinn hjá okkur fyrir sumarfrí og gerðum við okkur glaðan dag af því tilefni.  Við fórum í vagnferð með honum Júlla niður í fjöru þar sem við lékum okkur góða stund.  Þegar við svo komum heim aftur voru grillaðir hamborgarar í matinn í boði foreldrafélagsins.  Þetta var rosalega skemmtilegur dagur og við förum öll glöð í sumarfrí.  Við óskum öllum gleðilegs sumars og þökkum fyrir skemmtilegan vetur.  Við sjáumst svo aftur hress og kát þann 12. ágúst næstkomandi.  Kær kveðja frá börnum og starfsfólki Smábæjar.
     
  • 13. júlí - Í dag var kveðjuveisla fyrir Úlf, Breka og Rán því þau eru öll að hætta hjá okkur á leikskólanum og flytja í Garðabæ.  Við óskum þeim alls hins besta á nýjum stað og þökkum þeim öllum fyrir frábærar stundir hér í Smábæ.  Við munum sakna ykkar.
    Þá var líka kveðjuveisla fyrir Dísellu og Guðnýju í gær þar sem þær eru að fara úr leikskólanum og í grunnskólann.  Við þökkum þeim líka fyrir góðar stundir í leikskólanum og óskum ykkur góðs gengis í skólanum.
     
  • 5. júlí - Hann Aron Steinar hætti á leikskólanum 30. júní síðastliðinn.  Hann er nú að fara í grunnskólann í haust og við óskum honum góðs gengis í skólanum.  Við kvöddum Aron með veislu og við viljum líka þakka honum fyrir góðar stundir síðustu ár.  Bestu kveðjur frá öllum börnum og starfsfólki í Smábæ.
     
  • 5. júlí - Matseðill fyrir þessa og næstu viku er kominn inn á síðuna.
     
  • 30. júní - Dagatal fyrir júlí er komið inn á síðuna.
     
  • 25. júní - Matseðill fyrir næstu viku er kominn inn á síðuna.
     
  • 21. júní - Í dag kom til okkar ný stelpa sem ætlar að vera hjá okkur fram að sumarfríi.  Hún heitir Margrét María og er 5 ára.  Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til okkar í Smábæ.
     
  • 21. júní - matseðill fyrir vikuna er kominn inn á síðuna.
     
  • 14. júní - Fimmtudaginn 17. júní er lokað á leikskólanum og föstudaginn 18. júní lokar leikskólinn kl. 12 vegna starfsdags.
     
  • 14. júní - kominn er matseðill fyrir vikuna inn á síðuna.
     
  • 4. júní - búið er að setja inn matseðill fyrir næstu viku á síðuna.
     
  • 3. júní - myndir frá starfinu frá því í apríl eru nú komnar inn á síðuna :)
     
  • 2. júní - Á mánudaginn vorum við í Smábæ með sýningu á ýmsum listaverkum sem við unnum í síðustu viku, sem var listavika hjá okkur.  Við gerðum mósaíklistaverk, sandlistaverk, máluðum á glugga og gerðum sjálfsmyndir með garni svo eitthvað sé nú nefnt.  Þetta var mjög skemmtilegt og gaman að fá mömmur, pabba, afa, ömmur og fleiri á sýninguna til okkar.
    Sama dag voru líka skólaslit í grunnskólanum og um leið voru krakkarnir í skólahóp formlega útskrifaðir úr leikskólanum þó að flestir þeirra verði nú hérna með okkur fram að sumarfríi.  Við óskum þeim Úlfi, Aroni, Dísellu og Guðnýju innilega til hamingju með þennan merka áfanga og óskum þeim alls hins besta í grunnskólanum.
    Þá er hann Úlfur hættur hjá okkur og við þökkum honum fyrir góðar og skemmtilegar stundir síðustu árin og óskum honum góðs gengis á nýjum stað í haust.
     
  • 11. Maí - í gær fórum við í lambaferð að Krossum - sem reyndar var svo á Stóru Hámundarstöðum þannig að við byrjuðum á því að fara á vitlausan stað ... en það bjargaðist nú alveg eftir allt saman.  Við fengum að sjá lömb með mæðrum sínum, sum voru orðin svolítið stór en önnur voru alveg nýfædd.  Tvö fæddust bara rétt nokkrum klukkutímum áður en við komum.  Svo grilluðum við pylsur og fengum ávaxtasafa með.  Það var frekar kalt úti og norðanvindur þannig að það var nú ósköp notalegt að fá smá orku í kroppinn.  Það voru margir foreldrar sem komu með okkur og var það rosalega skemmtilegt.  Við söknuðum þess þó að sjá ekki fleiri dýr en lömbin en þau voru nú samt sem áður mjög sæt.
     
  • ATH - Mánudaginn 10. maí næstkomandi förum við á leikskólanum í lambaferð að Krossum 1.  Við förum með ferjunni kl: 9:00 og komum heim með ferju kl: 11:30.  Þeir foreldrar sem hafa kost á eru beðnir um að koma með.  Foreldrafélagið býður börnum leikskólans uppá grillaðar pylsur og svala og foreldrar geta keypt sér skammt fyrir 200 kr.
     
  • 5. maí - Matseðill fyrir maí er komin á síðuna
     
  • 3. maí - Sumarlokun leikskólans verður frá og með 15. júlí til og með 11. ágúst. 
     
  • 27. apríl - myndir frá því í janúar, febrúar og mars eru komnar á síðuna.  Þá viljum við líka segja frá því að við erum búin að fá okkur fiska hérna í leikskólanum og það er mjög gaman að mæta á morgnana og skoða fiskana og svo skiptumst við á að gefa þeim.
     
  • 15. apríl - matseðill fyrir apríl er komin á síðuna og er beðist afsökunar á því hversu seint hann hann kom inn í þetta skiptið.
     
  • 8. apríl - Velkomin aftur til starfa öll sömul.  Nú eru páskarnir búnir og við erum komin á fullt hér í leikskólanum.  Í gær var heilmikið fjör hjá okkur og við vorum að mála saman litla trékubba sem við ætlum svo að nota hérna í leikskólanum.  Í dag var svo leiksýning fyrir leikskólann og skólann - það var leikritið um Karíus og Baktus og það var mjög skemmtilegt.  Við minnum á íþróttadag á morgun - föstudag.  Í næstu viku ætlum við að nota mjólkurfernur í listasmiðju hjá okkur og óskum við eftir því að foreldrar sendi okkur nokkrar fernur með börnunum fyrir þriðjudaginn. 
     
  • 30. mars - Gleðilega páska.  Kær kveðja, börn og starfsfólk Smábæjar.
     
  • Dagatal fyrir apríl er komið inn á heimasíðuna.
     
  • 30. mars - Í dag er síðasti dagurinn hjá okkur fyrir páskafrí.  Vikan hefur verið mjög róleg hjá okkur og frekar fámennt á leikskólanum.  Við ætlum aðeins að breyta til í dag og hafa það svolítið huggulegt saman þar sem þetta er síðasti dagurinn fyrir frí. Þá er hann Dominik líka að hætta hjá okkur og þess vegna ætlum við að hafa smá veislu í dag, með poppi og huggulegheitum.  Takk fyrir samveruna Dominik og hafðu það gott á nýjum stað. 
     
  • 23. mars - Í dag fengum við umbun.  Við höfum verið að safna okkur stjörnum í fataherberginu þannig að þegar við erum dugleg að klæða okkur og það gengur vel getum við fengið stjörnu á orminn.  Við höfum líka verið að safna okkur hjörtum í samveru þannig að þegar við förum eftir reglunum í samverunni getum við fengið hjörtu.  Nú höfum við verið alveg svakalega flott í því að safna bæði stjörnum og hjörtum og það var komið að því að fá umbun fyrir.  Þess vegna fengum við í dag að horfa á mynd um Herkúles og fengum popp með.  Það var mjög gaman og við áttum notalega stund öll saman.  Svo kom líka hann Humi aftur í heimsókn til okkar í dag og var með tónlistarstund með okkur.  Hann tók með sér harmonikku sem hann sýndi okkur og allir fengu líka að prófa.
     
  • 19. mars - Við erum búin að eiga mjög skemmtilega viku hérna í Smábæ.  Á miðvikudaginn vorum við með dótadag.  Margir mættu með leikföng að heiman þann dag og vakti það mikla lukku, það er alltaf gaman að fá að skoða nýtt dót.  Þá hefur veðrið leikið við okkur og það hefur verið mjög gaman að sulla og drullumalla á útisvæðinu hjá okkur.  Hann Humi kom til okkar eftir hádegið í gær og var með tónlistarstund.  Hann kom með gítarinn sinn og söng með okkur og spilaði.  Það var alveg svakalega gaman.  Í morgun fórum við svo í íþróttahúsið og skemmtum okkur konunglega þar, eins og alltaf þegar við förum þangað.
     
  • 15. mars - á miðvikudag og fimmtudag í síðustu viku var hún Jórunn, leikskólakennari, í heimsókn hjá okkur.  Það var mjög skemmtilegt og fróðlegt að fá að hafa hana hérna hjá okkur.
     

  • Miðvikudagur 10. mars - Christian Freyr varð 4 ára í dag og af því tilefni vorum við með afmælisveislu, fengum popp og saltstangir.  Við horfðum líka á Karíus og Baktus og það var mjög gaman.

  • Matseðill og dagatal fyrir marsmánuð eru komin inn á síðuna

  • Fimmtudaginn 4. mars nk.kl: 16:00 verður foreldrafundur á leikskólanum. Hvetjum við alla foreldra til að mæta. 

  • 1. mars 2010  - Í dag er umbunardagur hjá eldri krökkunum og fengu þau að fara í fótabað og hafa það notalegt.

  • 19. febrúar 2010 Í dag var síðasti vinnudagurinn hjá Ingibjörgu Björnsdóttur. Ég færi börnum, foreldrum og samstarfsfólki í Hríseyjarskóla kærar þakkir fyrir samstarfið og óska skólanum alls hins besta í framtíðinni.  Með kærri kveðju til ykkar allra, Inga

  • 18. febrúar 2010  Starfsdagur verður á föstudaginn 26. febrúar nk. Þá lokar leikskólinn kl. 12.

  • 15. febrúar 2010  Nýr deildarstjóri Ingibjörg Þórðardóttir tók til starfa í dag. Við bjóðum Ingu velkomna í Smábæ!

  • 7. febrúar 2010  Númi Möller átti 2 ára afmæli á sunnudaginn 7. febrúar. Til hamingju með afmælið Númi Möller!

  • 2. febrúar 2010  Dagur leikskólans er 6. febrúar nk. Af því tilefni ætlum við að gefa út upplýsingabækling um Hríseyjarskóla - Leikskóladeildina Smábæ og dreifa í fyrirtæki á föstudag.

  • 1. febrúar 2010  Auðunn Snær á 2 ára afmæli í dag. Hann er einn af þremur afmælisbörnum mánaðarins. Til hamingju með afmælið Auðunn Snær! Matseðill og dagatal fyrir febrúarmánuð eru komin inn á síðuna.

  • 13. janúar 2010  Grunnskólinn í Hrísey breytti um nafn núna nýverið og heitir núna Hríseyjarskóli. Það nafn var formlega tekið í notkun um áramót. Undir Hríseyjarskóla starfa tvær deildir, grunnskóladeild og leikskóladeildin Smábær. Nokkuð er síðan skólarnir voru sameinaðir en í vetur hefur verið unnið markvisst að því að auka samvinnu og samstarf þeirra. Þessi sameining kallar á einhverjar breytingar t.d. voru foreldrafélögin sameinuð í vor. Skólastjóri Hríseyjarskóla er áfram Þórunn Arnórsdóttir og deildarstjóri leikskóladeildarinnar Smábæjar er Ingibjörg Björnsdóttir.

  • 13. janúar 2010  Breyting á gjaldskrá leikskóla. Samkvæmt fjárhagsáætlun fræðslu- og uppeldismála fyrir árið 2010 hækkar gjaldskrá leikskóla um 8% og gjaldskrá fæðis hækkar um 10%. Sjá nánar á www.akureyri.is
    Hækkunin tekur gildi 1. janúar 2010.

  • 5. janúar 2010  Gleðilegt nýtt ár! Velkomin aftur í leikskólann! Dagatal og matseðill fyrir mánuðinn eru komin inn á síðuna.

  • 23. desember 2009  Leikskólinn fer í jólafrí. Það er því lokað á morgun Þorláksmessudag og á milli jóla og nýárs. Mánudaginn 4.  janúar er starfsdagur og lokað þann dag. Við opnum svo aftur 5. janúar á nýju ári. Við óskum ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og vonum að allir njóti frísins.                                                          Jólakveðja, börn og starfsfólk í Smábæ.

Gleðileg jól!

  • 1. desember 2009  Dagatal og matseðill mánaðarins eru komin inn á síðuna.

  • 29. desember 2009 Stundin var notaleg á Aðventukvöldinu í kirkjunni í kvöld. Leikskólabörnin sungu lagið Klukkurnar dinga linga ling og léku undir með jólabjöllum. Þau höfðu æft stíft og stóðu sig með prýði. Frábært hjá ykkur!

  • 2. nóvember 2009  Dagatal og matseðill mánaðarins eru komin inn.

  • 30. október 2009  Októbermánuður var mikill afmælismánuður og í dag héldum við upp á þrefalt afmæli. Anna María á 2 ára afmæli í dag, Inga átti afmæli þann 25. október og Guðmar Gísli varð 3 ára 20. október en hann var lasinn á afmælisdaginn. Berglind á svo afmæli þann 1. nóvember. Til hamingju allir!

  • 21. október 2009  Daníel Blær er fjögurra ára í dag og Guðmar Gísli átti þriggja ára afmæli í gær. Í dag héldum við því afmælispartý. Til hamingju með afmælin strákar!

  • 15. október 2009  Fundargerð frá foreldrafundi er nú aðgengileg á síðunni undir foreldrafélag.

  • 1. október 2009  Matseðill og dagatal fyrir októbermánuð eru komin inn.

  • 29. september 2009  Við minnum á myndlistasýninguna á morgun miðvikudag á milli klukkan 9 og 11. Sýningin er sölusýning og ágóðinn rennur í leikfangasjóðinn okkar. Boðið verður upp á léttar veitingar. Við minnum einnig á að við seljum tækifæriskort unnin af börnunum á endurunninn pappír.                                                Allir velkomnir á myndlistasýninguna!

  • 15. september 2009  Hér á síðunni er nú að finna viðbragðsáætlun við heimsfaraldri inflúensu sem gildir fyrir grunn- og leikskólann í Hrísey. Markmið áætlunarinnar er að tryggja skipulögð og samræmd viðbrögð allra skólastofnana og starfsmanna þeirra ef til inflúensufaraldurs kemur (sjá viðbragðsáætlun).

  • 9. september 2009  Göngum í skólann átakið hófst í dag. Nú göngum við öll eða hjólum til og frá leikskóla. Þá fáum við góða hreyfingu, lærum umferðarreglurnar enn betur og mengum minna. Okkur þótti einmitt tilvalið að vera með umferðarviku á sama tíma og erum við búin að vera að æfa okkur með innipúkanum.

  • 8. september 2009 Dagatal fyrir september mánuð er komið inn á síðuna.

  • 7. september 2009  Í dag byrjaði ný stúlka í leikskólanum hjá okkur. Hún heitir Guðný Ösp og er dóttir Hrafnhildar og Magnúsar. Þau eru nýflutt í Hrísey en Guðný hefur samt áður verið í Smábæ því hún var hér einn vetur þegar hún var 2 ára. Velkomin Guðný!

  • 31. ágúst 2009  Í dag kvöddum við Kalla okkar kanínu en hann dó í búrinu sínu í gær. Kalli hefur verið einn af okkur til fjölda ára og börnin haft gaman af en hann var nú orðinn gamall og þreyttur. Kalli var jarðsettur með viðhöfn í Smábæjarreit í morgun. Ekki var annað að sjá en að börnin hefðu skilning á þessum lífsins gangi. Hér er skemmtileg mynd af Kalla þar sem hann fékk far um þorpið í dúkkuvagni.                          

  • 26. ágúst 2009  Þá er Dísa matráðurinn okkar komin aftur til starfa eftir sumarfrí en hún eldar að venju dýrindis mat fyrir okkur. Velkomin til starfa Dísa! Matseðill fyrir seinni hluta ágúst og september er kominn inn.

  • 13. ágúst 2009  Velkomin aftur! Þá er skólastarfið byrjað aftur hjá okkur í Smábæ. Hér eru allir sólbrúnir og vel úthvíldir eftir gott frí. Fyrsta dag eftir sumarfrí var nokkuð góð mæting og börnin fegin að hitta leikfélagana og komast aftur í sína rútínu. Við erum þegar búin að skipuleggja það sem eftir er af ágúst mánuðinum og ætlum að hafa berjaviku í næstu viku. Þá förum við í berjamó og fyllum öll box og fötur. Við ætlum ekki bara að borða berin út á hafragrautinn okkar  heldur ætlum við líka að föndra með þau. Munið eftir að koma með box á mánudaginn! Dagatal og matseðill fyrir mánuðinn eru komin inn.

  • 17. júlí 2009  Við í Smábæ erum farin í sumarfrí. Hafið það gott í sumarfríinu! Sjáumst svo aftur fimmtudaginn 13. ágúst. Sólarkveðja til ykkar allra!

  • 14. júlí 2009  Fullt af nýjum myndum á myndasíðunni okkar.

  • Minnum á að síðasti dagur fyrir sumarlokun er 17. júlí. Leikskólastarfið byrjar síðan aftur 13. ágúst.

  • 1. júlí 2009  Dagatal og Matseðill fyrir júlí mánuð eru komin inn.

  • Munið eftir að skrifa í gestabókina!

  • 3. júní 2009 Dagatal og Matseðill mánaðarins eru komin inn.

  • Minnum á Vorhátíð og skólaslit grunnskólans á föstudag 29. maí kl. 16. Þann dag verður Emil Hrafn Ómarsson útskrifaður úr leikskólanum og börnin ætla að sýna söngatriði. Foreldrar og aðrir velunnarar skólans eru  velkomnir til að skoða handverk nemenda og gæða sér á grilluðum pylsum í boði foreldrafélagsins. 

  • 28. maí 2009 Myndir úr Lambaferðinni eru komnar inn.

  • 18. maí 2009  Á morgun þriðjudag förum við í okkar árlegu Lambaferð. Við förum í ferju kl. 9 og með rútu inn á Stóra-Dunhaga. Þar ætlum við að kynnast dýrunum í sveitinni og grilla saman í hádeginu. Foreldrar eru velkomnir með og mætingin er mjög góð. Spennandi ferð framundan!

  • 14. maí 2009  Úlfur Þórarinsson er fimm ára í dag. Af því tilefni var afmælisveisla þar sem við fengum okkur gómsæta græna afmælisköku. Til hamingju með afmælið Úlfur!

  • 13. maí 2009  Í dag fórum við í gönguferð í fuglahúsið við Lambhagatjörn. Það var nú nokkuð hvasst þennan dag svo við fengum far með Bróa á heyvagninum aðra leið. Við sáum nokkra fugla við tjörnina og skrifuðum í gestabókina. Því miður gleymdist myndavélin heima.

  • 6. maí 2009  Umhverfisnefnd Grunnskólans í Hrísey bíður íbúum Hríseyjar á súpufund í hádeginu 6. maí. Sérstök áhersla verður á umhverfismerki auk kynningar á útikennslu. Sjáumst hress.

  • 4. maí 2009  Dagatal og Matseðill mánaðarins eru komin inn.

  • 23. apríl 2009  Árshátíð Grunnskólans var haldin á  Sumardaginn fyrsta í Íþróttamiðstöðinni. Þar buðu nemendur upp á frábæra skemmtun og seldu kaffiveitingar. Skólablaðið Hrís var einnig gefið út sama dag. Frábær skemmtun hjá nemendum Grunnskólans í Hrísey. Hægt er að sjá myndir frá árshátíðinni á heimasíðu grunnskólans www.gshrisey.akureyri.is

  • 18. apríl 2009  Dísella Carmen Hermannsdóttir verður  fimm  ára og í tilefni afmælisins var kökuveisla í dag, föstudag. Til hamingju með afmælið Dísella Carmen!

  • 16. apríl 2009  Í dag var rauður dagur hjá okkur.

  • 6. apríl 2009  Við í Smábæ erum komin í páskaskap. Við erum búin að föndra páskaskraut og í dag kom séra Hulda Hrönn í heimsókn til okkar og sagði okkur allt um páskahátíðina. Hún sagði okkur sögur og við fengum að sjá brúðuleikhús sem Marín og Gabríel sáu um. Takk fyrir komuna séra Hulda Hrönn, Marín og Gabríel!

  • 1. apríl 2009  Dagatal og matseðill fyrir aprílmánuð eru komin inn.

  • Loksins, loksins! Komnar nýjar myndir m.a. frá heimsókninni okkar í nautabúið. Skoðið myndirnar hér Einnig eru komnar inn myndir frá því í desember 2008. Þær sjáið þið hér

  • 20. mars 2009  Nú er mál að fara að uppfæra efnið á heimasíðunni okkar hér í Smábæ. Síðan hefur því miður legið í láginni í alltof langan tíma en nú á næstunni munum við reyna að setja inn nýtt efni. Við biðjum ykkur samt sem áður að sýna okkur þolinmæði áfram því tæknimálin eru aðeins að vefjast fyrir okkur.

  • Hér fyrir neðan höfum við sett inn nokkur fréttaskot af því sem á daga okkar hefur drifið.

  • 16. mars 2009  Foreldraviðtöl fóru fram vikuna 16.-20. mars sl.

  • 10. mars 2009  Christian Freyr Hermannsson varð þriggja ára. Að sjálfsögðu héldum við uppá daginn með kökuveislu.

  • 9. mars 2009   Dagatal mánaðarins komið út.

  • 13. febrúar 2009  Ferð í nautabúið í Hrísey til að kíkja á litla kálfinn sem fæddist í janúar sl. Við vorum beðin að gefa kálfinum nafn, og var ákveðið að ,,hún" skyldi heita Lukka. Við fengum far á stóra heyvagninum. Þetta var mjög skemmtileg ferð og við setjum inn myndir fljótlega.

  • 10. febrúar 2009  Nú þegar við höfum fengið þessa glæsilegu íþróttaaðstöðu hér í Hrísey er um að gera að hreyfa sig og hrista og ætlum við í Smábæ að hafa íþróttaþema tvo föstudaga í mánuði framvegis. Þá förum við í fínu Íþróttamiðstöðina okkar og förum í leiki og þrautir. Það er viðbót við Íþróttaskólann sem er á miðvikudögum hjá Ingibjörgu kennara en þar hafa börnin fengið alveg frábæra þjálfun og allir haft mjög gaman af.          

 

 


Leikskólinn Smábær
     v/Hólabraut
     630 Hrísey
     Sími: 466-1782
     Netföng:

ith@akmennt.is

thorunna@akureyri.is

Mikilvægar dagsetningar

Sumarvistun

Viðbragðsáætlun inflúensu


 

Endilega sendið okkur
kveðju í gestabókina

Heimasíðan var síðast uppfærð:

13.08.2010

Þú ert gestur númer:

Hit Counter

síðan 14. mars 2006

 

 

+